Viðskipti innlent

Skipt um stjórnarformann í Icelandic Group

Magnús Þorsteinsson, nýr stjórnarformaður Icelandic Group.
Magnús Þorsteinsson, nýr stjórnarformaður Icelandic Group.

Stjórnarformannsskipti hafa átt sér stað í Icelandic Group. Í tilkynningu frá félaginu segir, að í ljósi breytinga á eignaraðild að félaginu hafi Gunnlaugur S. Gunnlaugsson, stjórnarformaður, ákveðið eftir stjórnarfund í gær að láta af embætti. Nýr stjórnarformaður var kjörinn Magnús Þorsteinsson.

Gunnlaugur mun eftir sem áður eiga áfram sæti í stjórn félagsins.

Magnús Þorsteinsson hefur setið í stjórn Icelandic Group síðar í október í fyrra, að því er segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×