Innlent

Ók undir áhrifum á ljósastaur

Reykjanesbraut.
Reykjanesbraut. MYND/Hari

 

Rúmlega þrítug kona sem ók bíl sínum á ljósastaur á Reykjanesbrautinni um miðnætti í gær slapp án meiðsla. Bíllinn skemmdist hins vegar mikið og þurfti dráttarbíl til að fjarlægja hann af vettvangi. Konan sem ekki hefur ökuréttindi er grunuð um akstur undir áhrifum lyfja og fíkniefna.

Kona var tekin í Reykjanesbæ með tuttugu og fimm e-töflur og fjörtíu grömm af hassi í nótt. Lögreglan gerði leit á heimili og í bíl konunnar vegna gruns um sölu og vörslu fíkniefna. Fíkniefnin voru í söluumbúðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×