Innlent

Á gjörgæsludeild eftir bílslys

Landspítali-Háskólasjúkrahús.
Landspítali-Háskólasjúkrahús. MYND/GVA

Karlmaður var fluttur á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir bílslys, við bæinn Breiðumýri í Reykjadal, á áttunda tímanum í gærkvöldi. Tveir fólksbílar lentu saman og klippa þurfti ökumann annars bílsins út úr bíl sínum en aðra sakaði ekki.

Nokkur hálka var á veginum þegar slysið varð. Sjúkrabíll sótti manninn frá Akureyri og fór með hann að Stórutjörn þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hann. Maðurinn var í aðgerðum í nótt, ekki er talið að hann sé með höfuðskaða og er líðan hans eftir atvikum. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild er hugsanlegt að hann verði útskrifaður af deildinni í dag eða á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×