Tónlist

Jólin með Bach

Schola cantorum
Schola cantorum

Aðventu- og jólasálmar og sálmaforleikir eftir Johann Sebastian Bach úr Litlu orgelbókinni hljóma á tónleikum Björns Steinars Sólbergssonar og kammerkórsins Schola cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar í Hallgrímskirkju sunnudaginn 10. desember kl. 17. Tónleikarnir eru hluti af Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju sem nú er haldin í þriðja sinn en eru jafnframt hluti af viðmikilli sálmadagskrá á 25. starfsári Listvinafélags Hallgrímskirkju. Boðið er til samfelldrar veislu allt árið, þar sem sálmar verða fluttir með fjölbreyttum hætti. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi sálmsins í listrænni tjáningu innan kirkjunnar, allt frá því að Lúther gaf sálminum þýðingarmikið hlutverk, bæði til fræðslu og til að efla helgihald.

Litla orgelbókin („Orgelbüchlein") hans Jóhanns Sebastíans hefur að geyma litla sálmaforleiki við sálma sem skipuðu mikilvægan sess í litrófi kirkjuársins á dögum hans. Forleikirnir, sem tilheyra aðventu og jólum, tengjast sálmum sem sumir hverjir eru enn ómissandi í helgihaldi jólatímans hér á Íslandi. sálmarnir Nú kemur heimsins hjálparráð, Sjá himins opnast hlið og Af himnum ofan boðskap ber eru dæmi um þetta. Dagskráin er byggð upp þannig að sálmaforleikirnir og tilheyrandi sálmar eru fluttir í samhengi, Björn Steinar leikur sálmaforleikina á stóra Klais-orgelið, en Schola cantorum svarar hverjum forleik með samsvarandi sálmi í fjögurra radda útfærslu Bachs. Auk þess flytur Björn þekktasta orgeljólaverk Bachs, Pastorale í F-dúr, svo og sjaldheyrða fantasíu í G-dúr (Concerto) sem endurspeglar gleði jólanna.

Um flytjendur

Björn Steinar Sólbergsson hefur verið organisti Akureyrarkirkju síðan 1986. Hann stundaði framhaldsnám í orgelleik á Ítalíu og í Frakklandi þar sem hann útskrifaðist með einleikararpróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986. Björn Steinar hefur verið mjög virkur í tónlistarlífinu á Akureyri og unnið markvisst að uppbyggingu tónlistarstarfs við Akureyrarkirkju. Hann er formaður Listvinafélags Akureyrarkirkju, listrænn stjórnandi Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju og Sumartónleika í Akureyrarkirkju. S.l.í haust tók Björn Steinar við starfi aðstoðarorganista við Hallgrímskirkju. Hann kennir jafnframt orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og við Tónlistarskólann á Akureyri.

Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima og erlendis, m.a. á Ítalíu, Frakklandi, Þýskalandi, Englandi, Lettlandi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Noregi, Kanada og Bandaríkjunum. Einnig hefur hann leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammerhljómsveit Akureyrar og The Cleveland Institute of Music Orchestra. Hann hefur hvarvetna hlotið lof gagnrýnenda fyrir leik sinn. Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og á geislaplötur.

Björn Steinar naut opinberra starfslauna listamanna árið 1998 og er handhafi Menningarverðlauna DV 1999. Hann hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2001 og var valinn bæjarlistarmaður Akureyrar 2002.

Schola cantorum var stofnaður árið 1996 af stjórnanda sínum Herði Áskelssyni. Í kórnum eru 18 söngvarar, allir með mikla söngreynslu og tónlistarnám að baki. Kórinn hefur með reglubundnum hætti haldið tónleika í Hallgrímskirkju þar sem hljómað hefur bæði gömul tónlist og ný. Auk þess hefur kórinn víða komið fram hér á landi, í Frakklandi, Finnlandi og á Ítalíu. Kórinn hefur getið sér gott orð fyrir vandaðan kórsöng og jafnan hlotið hástemmt lof gagnrýnenda. Hann hefur gefuið út þrjá geisladiska, Principium með tónlist frá endurreisnartímanum og Audi creator coeli með samtímatónlist eftir íslensk tónskáld. Síðari diskurinn var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2001. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkur 2006 og starfar nú sem atvinnukór.

Hörður Áskelsson fæddist á Akureyri og hóf tónlistarnám sjö ára gamall. Hann nam orgelleik og tónmenntakennslu við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan tónmennta-kennaraprófi og burtfararprófi í orgelleik. Frá 1976 til 1981 stundaði Hörður framhaldsnám við Robert Schumann tónlistarháskólann í Düsseldorf og lauk þaðan A-prófi í kirkjutónlist með láði. Frá 1982 hefur Hörður verið organisti Hallgrímskirkju í Reykjavík og forgöngumaður í uppbyggingu listalífs þar. Hann stofnaði Listvinafélag og Mótettukór Hallgrímskirkju 1982, en það eru hornsteinar listastarfsemi kirkjunnar. Hann setti á laggirnar Kirkjulistahátíð, sem haldin hefur verið annað hvert ár síðan 1987, og orgeltónleikaröðina Sumarkvöld við orgelið árið 1993, en hún er haldin hvert sumar. Árið 1996 stofnaði hann kammerkórinn Schola contorum.

Hörður hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og með kórum sínum hefur hann tekið þátt í mörgum tónlistarhátíðum og unnið til verðlauna í alþjóðlegum samkeppnum. Hann hefur stjórnað flutningi margra óratóría, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, og frumflutt fjölda íslenskra tónverka. Tónlistarflutningur Harðar hefur verið hljóðritaður af útvarpi og sjónvarpi og gefinn út á mörgum hljómdiskum.

Hörður Áskelsson hefur kennt orgelleik og kórstjórn við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og á árunum 1985-95 var hann lektor í litúrgískum söngfræðum við guðfræðideild Háskóla Íslands. Hörður var tónlistarstjóri Kristnihátíðar á Þingvöllum í júlí árið 2000. Vorið 2002 hlaut hann íslensku tónlistarverðlaunin sem tónlistarflytjandi ársins 2001 og menningarverðlaun DV í tónlistarflokki, m.a. fyrir flutning sinn á Passíu eftir Hafliða Hallgrímsson og Jósúa eftir Händel. Hann var einnig útnefndur Borgarlistamaður Reykjavíkur 2002. Hörður var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 2004. Hann hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2006.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×