Skotbardagi þrátt fyrir vopnahlé 18. desember 2006 12:30
Til skotbardaga kom í miðri Gaza-borg snemma í morgun þrátt fyrir að fulltrúar Hamas- og Fatah-hreyfinga Palestínumanna hefðu samið um vopnahlé. Abbas forseti stendur við yfirlýsingu sína um að boðað verði til kosninga á næsta ári, og það þó viðræður um skipan þjóðstjórnar verði haldið áfram í vikunni. Um tíu grímuklæddir liðsmenn Hamas, gráir fyrir járnum, leituðu skjóls í miðborginni um leið og þeir skiptust á skotum við jafn marga byssumenn úr hópi Fatah-liða. 16 ára drengur særðist í átökunum. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, lýsti því yfir um helgina að boðað yrði til kosninga þremur árum fyrr þar sem viðræður um skipan þjóðstjórnar hefðu siglt í strand. Hamas-liðar sögðu það valdarán. Það var svo í gærkvöldi sem ákveðið var að halda viðræðum um þjóðstjórn áfram. Abbas sagði síðan í morgun að þrátt fyrir það yrði áfram stefnt að kosningum eftir áramót. Því virðist sem viðræður um skipan þjóðstjórnar fresti ekki ákvörðun forsetans líkt og margir hefðu talið. Fulltrúar Fatah og Hamas funda síðan í vikunni og reyna að hrinda viðræðuferlinu af stað á ný. Koma á veg fyrir vopnuð átök liðsmanna, öryggissveitir fá að snúa aftur í höfuðstöðvar sínar, gíslar verða látnir lausir og endir bundinn á umsátur um ráðuneyti heimastjórnarinnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Krefji Eddu um margfalt hærri upphæð en eðlilegt sé Innlent Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi Erlent Geta loksins kvatt drenginn sinn heima á Íslandi Innlent Bjarni misst stuðning úr sínum kjarnahópi Innlent Segir brotthvarf Bjarna breyta pólitíska landslaginu Innlent Guðmundur Ari þingflokksformaður og Dagur kemst ekki á blað Innlent Hafi þurft að þola ómannúðlega meðferð sem dró hann til dauða Innlent „Hann kom víða við og snerti marga“ Innlent „Græna gímaldið“ minni helst á braggamálið og ábyrgðin liggi hjá borgarstjóra Innlent Togari kom með sprengju til hafnar á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi Ummæli um vanþakklæti Afríkubúa valda reiði Danir ekki í rónni með Grænlandsheimsókn Trumps yngri Le Pen látinn Símar framhaldskólanema læstir inni í skáp Trump-liðar vilja stöðva birtingu skýrslu Smiths Aldrei færri fangar í Guantánamo-fangelsinu Enn segjast menn vongóðir um vopnahlé á Gasa Tugir látnir eftir stóran skjálfta í Tíbet Trump yngri á leið til Grænlands Trudeau segir af sér Byrjuðu strax að endurskrifa sögu árásarinnar Minkarækt hafin að nýju eftir að milljónum var lógað Hafa tekið nokkur þorp í Kúrsk Sjötta fórnarlamb árásarinnar í Magdeburg látið Afsögn Trudeau sögð yfirvofandi Biðtíminn í umferðinni hvergi lengri en í Lundúnum Sagður hafa þegið töskur fullar fjár frá Gaddafi Kuldaboli bítur Bandaríkjamenn Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir The Vivienne er látin Trump ósáttur að flaggað verði í hálfa við innsetninguna Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Austurríkiskanslari segir af sér eftir árangurslausar viðræður Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku Höfnuðu skopmynd sem sýndi eigandann í vondu ljósi Fyrrverandi starfsmaður sakar Nicki Minaj um líkamsárás Jimmy Carter kvaddur Einn hinna látnu í New Orleans tengdur konungsfjölskyldunni Sjá meira