Ísland og ESB semja um tollalækkanir 30. mars 2006 12:38 Mynd/Valgarður Gíslason
Tollar á ýmsar landbúnaðarvörur verða felldir niður í viðskiptum á milli Íslands og landa Evrópusambandsins (ESB) 1. janúar á næsta ári. Er búist við að samkomulag á milli Íslands og ESB leiði til lægra verðs á innfluttum á landbúnaðarafurðum um leið og það skapar ný sóknarfæri til útflutnings íslenskra landbúnaðarafurða til ESB. Í Stiklum, vefriti utanríkisráðuneytisins, segir að samkomulagið sé gert á grundvelli 19. greinar samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Er þetta í fyrsta sinn sem Ísland og ESB gera samkomulag á grundvelli greinarinnar. Þá segir í ritinu að miðað sé við að tollfrjáls lambakjötskvóti landsins hækki úr 1.350 tonnum í 1.850 tonn og að ESB fái tollfrjálsan kvóta til Íslands fyrir 25 tonnum af kartöflum og 15 tonnum af rjúpum auk þess sem samkomulagið kveður á um gagnkvæma 15 tonna tollfrjálsan kvóta á pylsur. Þá fær ESB 20 tonna innflutningskvót fyrir osta til Íslands og Ísland fær á móti 20 tonna kvóta fyrir útflutning á smjöri til ESB-ríkja. Samkvæmt samkomulaginu falla tollar á jólatrjám, frosnu grænmeti, þurrkuðum matjurðum, sætum kartöflum og ávaxtasafa niður um áramótin. Þá falla innflutningstollar á lifandi hestum, hreindýrakjöti í heilum og hálfum skrokkum, tómötum, agúrkum og vatni sömuleiðis niður. Í Stiklum kemur fram að gert sé ráð fyrir gagnkvæmum viðskiptum með blóm og plöntur, þó ekki afskorin blóm eða pottaplöntur undir einum metra á hæð. Heilbrigðisreglur koma hins vegar í veg fyrir innflutning á lifandi hestum, að því er fram kemur í Stiklum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Viðskipti innlent Hildur ráðin forstjóri Advania Viðskipti innlent Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira Atvinnulíf Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Viðskipti innlent Atvinnuleysi eykst Viðskipti innlent Strákar og stálp fá styrk Viðskipti innlent Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Viðskipti innlent Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent Skipti í brúnni hjá Indó Viðskipti innlent 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Harma ónákvæma tilkynningu Kauphallar Landsbankinn fór fýluferð í Landsrétt vegna Borgunar Sjá meira