Innlent

Helga Jónsdóttir nýr framkvæmdastjóri BSRB

Helga Jónsdóttir
Helga Jónsdóttir

Helga Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri BSRB. Hún tekur við af Svanhildi Halldórsdóttur sem lét af störfum í haust eftir áratuga starf fyrir BSRB.

Helga er með meistarapróf í hagfræði frá Háskólanum í Osló. Sérfög hennar voru vinnumarkaðshagfræði og þróunarhagfræði.

Helga starfaði í fjármálaráðuneytinu frá árinu 1999, fyrst á fjárlagaskrifstofunni og síðan á rekstrar- og upplýsingaskristofu ráðuneytisins. Þar áður starfaði hún á kjaraþróunardeild hjá Reykjavíkurborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×