Fótbolti

AC Milan þykir líklegast til að hreppa Zambrotta

Zambrotta er mjög eftirsóttur leikmaður
Zambrotta er mjög eftirsóttur leikmaður NordicPhotos/GettyImages
Eins og búast mátti við í kjölfar ófara Juventus á síðustu dögum, hafa stórlið Evrópu nú rennt hýru auga til bestu leikmanna félagsins. Hinn fjölhæfi Gianluca Zambrotta er þar engin undantekning, en Sky-sjónvarpsstöðin heldur því fram að AC Milan sé líklegasta félagið til að landa honum.

Zambrotta var lykilmaður í heimsmeistaraliði Ítala á dögunum og hefur um árabil verið einn besti leikmaður A-deildarinnar á Ítalíu. Sögusagnir hafa verið á kreiki um það að fyrrum þjálfari hans Fabio Capello muni reyna að fá hann til liðs við sig hjá Real Madrid á Spáni, en nýjustu fregnir herma að Zambrotta vilji vera áfram á Ítalíu og fari því til AC Milan í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×