Fótbolti

Við höfum ekki efni á leikmönnum Juventus

Arsene Wenger
Arsene Wenger NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger gefur lítið út á þann orðróm að Arsenal sé á höttunum eftir einhverjum af stórstjörnum Juventus sem væntanlega munu yfirgefa ítalska félagið á næstu mánuðum, því hann segir að Arsenal hafi einfaldlega ekki efni á að borga þeim laun.

"Mál Juventus er að valda nokkrum titringi á leikmannamarkaðnum þessa dagana, en gleymum ekki að þetta eru heimsklassa leikmenn sem krefjast mjög hárra launa og þau getum við ekki borgað," sagði Arsene Wenger, sem nú er að leita sér að varnarmanni til að hlaupa í skarðið fyrir hinn meidda Philippe Senderos. Wenger segist hafa mætur á varnarmanninum Curtis Davies hjá West Brom, en bendir á að hann muni ekki borga þær 10-12 milljónir punda sem talið er að kosti að fá hann frá 1. deildarfélaginu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×