Erlent

Bjargaði barni af húsþaki

Þýskur fjárhundur kom tveggja ára barni til bjargar í Bandaríkjunum þegar það klifraði út um glugga á annarri hæð og gekk eftir þaki hússins. Drengurinn litli hafði gengið eftir átta húsþökum þegar nágrannar heyrðu gelt og komu auga á hundinn, sem fylgdi stráknum á þökum húsanna. Var drengnum snarlega bjargað.

Faðirinn sagðist feginn því að sonur sinn væri heill á húfi en skammast sín fyrir atvikið. Hann sagði slysið vera sér að kenna, hann hefði haldið að drengurinn kæmist ekki út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×