Innlent

Læsti sjálfan sig í skottinu

Níu ára gamall drengur í Vestmannaeyjum kom sér í ógöngur í síðustu viku þegar hann læsti sjálfan sig inni í farangursgeymslu bíls. Ekki vildi betur til en svo að hann var sjálfur með lyklana að bílnum í vasanum og bíllinn var harðlæstur.

Lögreglan í Vestmannaeyjum kom drengnum til hjálpar og tókst liðsmönnum hennar að opna skott bílsins og hleypa pilti úr prísundinni. Að sögn lögreglu var hann frelsinu afar feginn.

Ekki fer neinum sögum af því hvað drengurinn vildi ofan í farangursgeymsluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×