Innlent

Kjósa milli þriggja nafna á Ströndum

Heimabyggð, Strandabyggð, Strandahreppur og Sveitarfélagið Standir eru þær tillögur að nýju nafni á sameinað sveitarfélag Broddanes- og Hólmavíkurhreppa sem samstarfsnefnd um sameiningu hefur sent til umsagnar til örnefnanefndar. Þetta kemur fram á vefnum Strandir.is. Tillögurnar fengu flestar tilnefningar frá íbúum hreppanna en þeir kjósa um þrjár þeirra í sveitarstjórnarkosningum í lok mánaðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×