Sport

Ráðast örlög Phoenix Suns í nótt?

Tilþrif Kobe Bryant þar sem hann tryggði Lakers sigur í fjórða leiknum eru þegar steypt í sögubækurnar
Tilþrif Kobe Bryant þar sem hann tryggði Lakers sigur í fjórða leiknum eru þegar steypt í sögubækurnar NordicPhotos/GettyImages
Hann verður ekki af verri endanum sjónvarpsleikurinn á NBA TV í nótt þegar Phoenix Suns tekur á móti Los Angeles Lakers í fyrstu umferð úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í NBA. Lakers getur með sigri í kvöld slegið Phoenix út og komist mjög óvænt í aðra umferð keppninnar, þar sem liðið mætir þá grönnum sínum í LA Clippers. Það yrði fyrsta einvígi grannliðanna í úrslitakeppni sögu NBA. Bein útsending frá leiknum hefst klukkan 2:30 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×