Fótbolti

Del Piero og Nedved áfram hjá Juve?

Nedved gæti orðið um kyrrt hjá Juve
Nedved gæti orðið um kyrrt hjá Juve AFP
Ítalski landsliðsmaðurinn Alessandro del Piero hefur þegar gefið það út að hann ætli sér ekki að yfirgefa herbúðir Juventus þrátt fyrir að liðið hafi á dögunum verið fellt í B-deildina með 30 stig í mínus. Hann segir að tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved ætli að gera slíkt hið sama, en Nedved hefur verið orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham á liðnum dögum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×