Innlent

Kókaíntölvumaður í dóm

Maður sem reyndi að smygla tæplega sjö hundruð grömmum af kókaíni til landsins í tölvu bíður nú dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Maðurinn sem er um fimmtugt reyndi að smygla fíkniefninu til landsins í mars.

Hann hafði komið því fyrir í járnkassa sem hann faldi í tölvu. Maðurinn var að koma frá Orlando þegar tollverðir fundu kókaínið í tölvunni.

Aðalmeðferð í málinu lauk í Héraðsdómi í gær og verður dómur kveðinn upp innan skamms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×