Innlent

Þórhildur sækist eftir 6.-8. sæti í prófkjöri í Reykjavík

Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi þingkona, sækist eftir sjötta til áttunda sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna komandi þingkosninga.

Þórhildur hefur lengst af starfað sem leikstjóri og á að baki tugi leik-og óperusýninga auk starfa í útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum. Þá var hún leikhússtjóri í Borgarleikhúsi 1996-2000. Hún er jafnframt ein af stofnendum bæði Kvennaframboðs og Kvennalistans og var kjörin á þing fyrir Kvennalista árið 1987 og sat þar í eitt kjörtímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×