Innlent

Nóbelsverðlaunahafi heiðursdoktor frá HÍ

Robert A. Mundell, prófessor við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum og handhafi Nóbelsverðlaunanna í hagfræði árið 1999, verður veitt heiðursdoktorsnafnbót við viðskipta- og hagfræðiskor HÍ á morgun þegar skólinn útskrifar kandídata.
Robert A. Mundell, prófessor við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum og handhafi Nóbelsverðlaunanna í hagfræði árið 1999, verður veitt heiðursdoktorsnafnbót við viðskipta- og hagfræðiskor HÍ á morgun þegar skólinn útskrifar kandídata. MYND/Vilhelm Gunnarsson

Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði er meðal þeirra sem hljóta heiðurdoktorsnafnbót við útskrift Háskóla Íslands á morgun. Sá heitir Robert A. Mundell og er prófessor við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum. Hann hlýtur nafnbótina við viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Auk hans hljóta tveir aðrir heiðursdoktorsnafnbót. Það eru Assar Lindbeck, prófessor við alþjóðahagfræðideild Háskólans í Stokkhólmi, og Kristján Sæmundsson, vísindamaður á sviði jarðfræði Íslands, eldfjallafræði og jarðhita. Lindbeck, sem er fyrrverandi formaður sænsku Nóbelsverðlaunanefndarinnar, hlýtur nafnbótina við viðskipta- og hagfræðideild HÍ en Kristján hlýtur sína nafnbót við raunvísindadeild.

Fjöldi brautskráðra er að þessu sinni 381 talsins, þar af ljúka 101 meistaranámi. Heildarfjöldi brautskráðra kandídata frá HÍ í ár er þar með orðinn 1617 auk þess em 13 hafa lokið doktornámi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×