Innlent

Haglabyssan enn ófundin

Haglabyssan sem notuð var við skotárás á raðhús við Burknavelli í Hafnarfirði í síðasta mánuði er enn ófundin, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar þar í bæ.

Tveir menn sem grunaðir eru um að eiga þátt í árásinni, svo og bensínsprengjuárás á raðhúsið þann 21. júní, sitja enn í gæsluvarðhaldi, samkvæmt úrskurði Hæstaréttar. Þeim er gert að sitja inni til 15. ágúst. Annar þeirra var á reynslulausn vegna fyrri fangelsisdóms þegar hann var handtekinn fyrir skotárásina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×