Innlent

Maður sleginn í rot í Hrísey

Maður var sleginn í rot á Fullveldishátíðinni í Hrísey sem haldin var um helgina.

Atvikið átti sér stað aðfaranótt sunnudags um þrjú leytið. Tveimur mönnum á þrítugsaldri lenti saman og eftir einhver orðaskipti sló annar maðurinn hinn með þeim afleiðingum að hann rotaðist.

Lögregla stóð skammt frá og varð vitni að atburðinum og handtók árásarmanninn. Hann var sendur í land með næstu ferju því lögregla hafði ekki aðstöðu til að vista menn í Hrísey.

Sá sem varð fyrir högginu hafði í gær ekki kært árásina til lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×