Erlent

Náði athygli krókódílsins

Belgiskur maður hefur verið útnefndur heimskasti túristi vikunnar, eftir að hann reyndi að taka mynd af krókódíl í Cape Tribulation, í Ástralíu.

Belginn vildi ná almennilegri mynd af krókódílnum, með ginið opið. Hann óð því út í ána og skvetti og stappaði fótunum, til þess að ná athygli krókódílsins. Það tókst.

Sem betur fór var fólk nálægt sem tókst að ná manniun í land, með svöðusár á fæti eftir bit skepnunnar. Ekki fylgir sögunni hvort Belganum tókst að ná mynd af krókódílnum, með ginið opið.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×