Innlent

Dagur Kári verðlaunaður

Dagur Kári Pétursson.
Dagur Kári Pétursson. MYND/Haraldur

Leikstjórinn Dagur Kári Pétursson hlýtur í næstu viku stærstu kvikmyndaverðlaun Dana Peter Emil Refn verðlaunin. Dagur Kári er fimmti leikstjórinn sem fær verðlaunin en þeim fylgja rúm ein milljón íslenskra króna. Þeir sem hlotið hafa verðlaunin eru Lars von Trier, Lukas Moodysson, Nicolas Winding Refn og Natasha Arthy.

Dagur Kári fær verðlaunin afhent á miðvikudaginn í næstu viku. Degi síðar verður haldið sérkvöld með Degi Kára á Dönsk-íslenskum Bíódögum á Norðurbryggju. Þar verður sýnd stuttmyndin Old Spice ásamt kvikmyndinni Nói Albínói.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×