Sport

Sheringham nálægt samkomulagi

Teddy Sheringham lætur engan bilbug á sér finna þó hann sé að komast á fimmtugsaldurinn
Teddy Sheringham lætur engan bilbug á sér finna þó hann sé að komast á fimmtugsaldurinn NordicPhotos/GettyImages

Alan Pardew, stjóri West Ham, segir að samkomulag sé í sjónmáli um að framlengja samning framherjans Teddy Sheringham hjá félaginu um eitt ár. Sheringham verður fertugur í næsta mánuði, en er enn í fantaformi.

"Ég er nú ekki mikið fyrir að blaðra um svona, en ég er bjartsýnn á að við séum að ná samningum við hann og það gerir það að verkum að við verðum með fimm topp sóknarmenn á næsta tímabili," sagði Pardew. Sheringham hefur komið við sögu í 14 leikjum liðsins á tímabilinu og hefur náð að skora í þeim 4 mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×