Sport

Hiddink næsti þjálfari Rússa?

Verður Hiddink næsti þjálfari Rússa?
Verður Hiddink næsti þjálfari Rússa? NordicPhotos/GettyImages

Rússneskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Guus Hiddink, þjálfari PSV Eindhoven og ástralska landsliðsins, muni taka við rússneska landsliðinu eftir HM í sumar. Hiddink hefur meðal annars verið orðaður við stöðu landsliðsþjálfara Englands.

Talið er að milljarðamæringurinn Roman Abramovich, eigandi Chelsea, sé aðalsprautan á bak við þessa ráðstöfun, en hann hefur varið ómældu fé í að reyna að efla landslið rússa. Þeir Abramovich og Hiddink munu vera góðir vinir og þegar Abramovich var spurður út í þessar fréttir viðurkenndi hann að sér líkaði vel við Hiddink og sagði hann góðan þjálfara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×