Innlent

Umferðarátak skilar sér ekki

Umferðarslys varð þegar sportbifreið var ekið á miklum hraða aftan á lítinn jeppa í Ártúnsbrekku um klukkan fimm í gær en loka þurfti svæðinu í rúma klukkustund á eftir. Þrennt var flutt á slysadeild en samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni voru meiðslin ekki veruleg.

Segir lögreglan að mildi sé að ekki hafi farið verr en fjöldi vitna greindi frá því að ökumaður sportbílsins hefði ekið á ofsahraða vestur Vesturlandsveginn. Sorglegt sé til þess að vita að umferðarátakið sem hefur verið í gangi á vegum Umferðarstofu sé ekki að skila sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×