Innlent

Sex á sjúkrahús eftir árekstur

Flytja þurfti sex manns á sjúkrahús eftir mjög harðan árekstur þriggja bíla á Reykjanesbraut klukkan tíu í gærmorgun. Beita þurfti klippum til að ná einum hinna slösuðu úr bílflaki.

Jepplingur með þremur innanborðs var á leið suður Reykjanesbraut og hugðist bílstjórinn beygja til hægri inn Aðalgötu í Keflavík. Þegar jepplingurinn hægði á sér ók átján ára piltur á fólksbíl aftan á jepplinginn með þem afleiðingum að hann kastaðist á annan fólksbíl sem kom norður Reykjanesbraut. Í þeim bíl voru fjórir og slösuðust tveir þeirra. Einn bíllinn valt og staðnæmdist síðan uppi við ljósastaur.

Alls voru átta manns í bílunum þremur, meðal annars þriggja ára gamall drengur og annar þrettán ára sem fékk skurð á enni.

Tveir voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík með beinbrot og annar þeirra þurfti að fara í frekari myndatökur í gær vegna höfuðmeiðsla.

Allt fólkið kenndi sér meins en mæðgur sem sátu hægra megin í bílnum sem kom úr norðri sluppu best og þurftu ekki á aðhlynningu að halda.

Bílarnir þrír eru allir stórskemmdir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×