Tónlist

Versti dúett allra tíma

Peter Andre og Jordan Hafa náð botninum með flutningi sínum á A Whole New World.
Peter Andre og Jordan Hafa náð botninum með flutningi sínum á A Whole New World.

„Fjórar mínútur og fimmtán sekúndur í helvíti." Svona lýsir vefútgáfa Ekstrabladets dúett Peter Andre og unnustu hans, Jordan, en útgáfa þeirra af Disney-smellinum A Whole New World hefur farið eins og eldur í sinu um netið eftir að ástralska blaðið The Daily Telegraph leyfði lesendum sínum að hlusta á „herlegheitin". Greinarhöfundur fer engum silkihönskum um flutninginn og segir varla hægt að lýsa frammistöðu hjónakornanna með öðru en að vísa til misþyrmingar dýra eða annars þaðan af verra.

Skoðanir blaðamanna og annarra lesenda eru flestar á einn veg. Um er að ræða versta dúett allra tíma og þarna kemur berlega í ljós af hverju frægðarsól Peter Andre reis aldrei hærra og hvers vegna Jordan ætti að halda sig við að fækka fötum í karlablöðum. Samkvæmt The Daily Telegraph er áætlað að þessi hryllingur, sem flutningur parsins á laginu vissulega er, komi út um næstu jól og greinarhöfundur blaðsins segir þetta án nokkurs vafa koma til greina sem haturs-jólapakki þetta árið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.