Innlent

Farmur féll af flutningabíl

Um fimmleytið í dag féll farmur aftan af flutningabíl á mótum Kringlumýrarbrautar og Laugarvegs. Farmurinn var hitaveiturör og stóðu þau um fimm metra aftan af palli bílsins en máttu ekki standa lengur en tvo metra út. Olli atvikið töfum á umferð í allt að klukkutíma.

Slitnuðu festingar sem notaðar voru og voru þær ekki taldar nógu sterkar. Viðurlög þessu eru alla jafnan sektir en ekki er víst hvort að fyrirtækið sem um ræðir verði sektað fyrir athæfið. Þurfti meira að segja að kalla til gröfu til þess að koma rörunum fyrir á palli bílsins á nýjan leik.

Lögreglan vill í framhaldi af þessu atviki hvetja ökumenn flutningabíla til þess að festa farm sinn tryggilega til þess að koma í veg fyrir hugsanleg slys.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×