Innlent

Síbrotamaður áfram í haldi

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir síbrotamanni þar til dómur gengur í máli hans, en þó ekki lengur en til 27. september. Maðurinn er grunaður um ýmiss konar fjársvik, fjölmarga þjófnaði, fíkniefnavörslu og bílþjófnað.

Maðurinn á langan sakaferil að baki og liggur undir grun um að hafa framið fjölmörg afbrot á síðustu dögum og mánuðum. Héraðsdómur hafði úrskurðað að ætla mætti að hinn ákærði myndi halda áfram að brjóta af sér ef hann væri frjáls ferða sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×