Innlent

Æfing gegn hryðjuverkum

Samæfing yfirstjórna og sérsveita lögreglu á Norðurlöndunum fór fram fyrr í vikunni.

Æfingin var haldin í ráðstefnumiðstöð danska Ríkislögreglustjórans. Var látið reyna á samskipti stjórnstöðva ríkislögreglustjóraembættanna til þess að æfa samvinnu og samhæfingu við möguleg hryðjuverkatilfelli á Norðurlöndunum.

Öll Norðurlöndin tóku þátt og þátttakendur þurftu að glíma við margvísleg hryðjuverkatilfelli sem mögulega gætu komið upp. Markmiðið var að styrkja sam-vinnu Norðurlandanna á þessu sviði með því að samæfa hryðjuverkaviðbúnað landanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×