Erlent

Franskir sósíalistar velja sér forsetaefni

Segolene Royal eftir fundinn í Nantes í gær.
Segolene Royal eftir fundinn í Nantes í gær. MYND/AP

Franski sósíalistaflokkurinn hélt prófkjör í dag fyrir forsetakosningarnar sem að fara þar fram á næsta ári. Talið er líklegt að konan Segolene Royal eigi þar eftir að vinna sigur á tveimur mótframbjóðendum úr röðum reyndari sósíalista. Aðeins þeir sem skráðir eru í flokkinn mega kjósa en þetta er aðeins í annað sinn sem að flokkurinn heldur prófkjör til þess að ákveða forsetaefni sitt. Búist er við fyrstu tölum á morgun.

Royal leitaði á sögulegar slóðir þegar hún hélt sinn síðasta kosningafund í gær í borginni Nantes, en þar hélt síðasti foresti sósíalista, Francois Mitterand, sinn síðasta kosningafund áður en hann náði kjöri árið 1981. Ef Royal nær ekki helmingi atkvæða í fyrstu umferð verður önnur umferð á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fá.

Andstæðingar hennar í prófkjörinu eru fyrrum fjármálaráðherra Frakka, Dominique Strauss-Kahn, og fyrrum forsætisráðherrann Laurent Fabius en talið er að hann eigi eftir að reka lestina í prófkjörinu. Sigurvegarinn í prófkjörinu mun síðan fara í forsetakosningarnar í apríl á næsta ári og mun þar væntanlega mæta innanlandsráðherra Frakka, Nicolas Sarkozy, en hann er líklegasti frambjóðandi hægrimanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×