Enski boltinn

Kirkland semur við Wigan

Chris Kirkland er orðinn leikmaður Wigan
Chris Kirkland er orðinn leikmaður Wigan NordicPhotos/GettyImages
Enska úrvalsdeildarfélagið Wigan hefur nú formlega fest kaup á markverðinum Chris Kirkland frá Liverpool, en leikmaðurinn gekk í raðir Wigan sem lánsmaður í sumar. Þessi 25 ára gamli markvörður hefur staðið sig vel með Wigan það sem af er leiktíðinni og hefur átt fast sæti í liðinu. Hann hefur nú skrifað undir þriggja ára samning.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×