Lífið

Gala-kvöld eftir gagngerar endurbætur

Fjölmenni mætti á opnunarhátíð í Þrastalundi í Grímsnesi um helgina þegar staðurinn var opnaður með formlegum hætti eftir miklar breytingar. Garðar Kjartansson, gjarnan kenndur við skemmtistaðinn NASA, tók við rekstri staðarins á síðasta ári og hefur staðurinn fengið mikla andlitlsyftingu.

Það er einfaldast að lýsa staðnum sem glæsilegum. Ekkert hefur verið til sparað til að skapa fágað andrúmsloft fyrsta flokks veitingastaðar, sem setendur á bökkum Sogsins, einum fallegasta stað sem völ er á.

Margt fólk var samankomið á opnunarhátíðinni sem er þekkt úr þjóðlífinu fyrir ýmis afrek. Sérstaklega var áberandi fjölmiðlafólk og gestir þeirra allir uppá búnir hið besta og hrifning í hverjum svip.

 

sudurland.net/Ól.
sudurland.net/Ól.
sudurland.net/Ól.
sudurland.net/Ól.
sudurland.net/Ól.
sudurland.net/Ól.
sudurland.net/Ól.
sudurland.net/Ól.
sudurland.net/Ól.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×