Segir leitun að spilltari stjórnmálamanni 19. nóvember 2007 18:44
Sverrir Hermannsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segir leitun að spilltari stjórnmálamanni en Finni Ingólfssyni fyrrverandi viðskipta- og iðnaðarráðherra, en Finnur gagnrýndi Sverri harkalega í þættinum Mannamál á Stöð 2 í gær. Í þættinum fór Finnur Ingólfsson meðal annars yfir einkavæðingu viðskiptabankanna og aðdraganda þess máls sem varð til þess að Sverrir Hermannsson þurfti að víkja úr bankastjórastól Landsbankans. Vísaði Finnur í greinargerð ríkisendurskoðanda um Landsbankann þar sem talað var um að þar þrifist ómæld spilling og sukk. Þá vísaði Finnur því á bug að einkavæðing bankanna hafi verið ákveðin á flokkspólitískum forsendum. Sagði hann að þau tilboð sem hafi verið samþykkt hafi einfaldlega verið þau bestu og sjálfur hafi hann ekki hagnast um krónu. Ennfremur sagði Finnur það ekki rétt að Landsbankinn hafi tapað á sölu á hlut sínum í Vátryggingafélaginu. Þvert á móti hafi bankinn grætt allt að tvo milljarða á sölunni þar sem hluturinn hafi verið keyptur yfir markaðsverði. Sverrir Hermannsson segir hins vegar rangt að bankinn hafi grætt á sölunni og segir hlutur Landsbankans í Vátryggingafélaginu hafa verið seldur langt undir markaðsvirði og líkir málinu við hyldjúpan sóðaskap. Þá vísar Sverrir því ennfremur á bug að hann hafi orðið uppvís að spillingu á meðan hann sat í bankastjórastól. Hann segir Finn hafa bolað sér í burtu þar sem hann var á móti einkavæðingaáformum Finns. Sakar hann Finn sjálfan um spillingu.
Mest lesið Lést í umferðarslysi við Álfabakka Innlent Tuttugu og þrjár konur stíga fram og fórnarlömb raðnauðgara talin á sjöunda tug Erlent „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Innlent Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Erlent Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Innlent „Þetta er bara brandarakvöld“ Innlent Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Innlent Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Innlent Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Innlent Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Innlent Fleiri fréttir Engin virkni í sprungunni og umfangsmikil lögregluaðgerð Erlendir ferðamenn gripnir glóðvolgir Harma að upplýsingar hafi verið sendar út fyrir mistök Tveimur sleppt og þrír eftir í haldi Þingkonur þjarma að heilbrigðisráðherra Þurfa ekki að skila Stálskipaauðnum Furðar sig á undirritun án aðkomu Alþingis Vilja hagræða í Reykjavík og leita til borgarbúa Grindvíkingum hleypt inn í bæinn á ný Fimm ára nauðgunardómur stendur Boðar brottvísanir brotamanna og afnám átján mánaða reglu Handtökur hér á landi þegar stór barnaníðssíða var tekin niður Segir Viðreisn óforbetranlegan stjórnlyndisflokk Aðalmeðferð hafin í Menningarnæturmáli Bein útsending: Þjóðaröryggi – Íslendingar og hafið Stöðumælaverðir lausir við ákvörðun um sekt Svæðisstjóri Vegagerðarinnar sleginn vegna banaslyssins Möguleiki að kvikugangurinn opnist nærri Reykjanesbraut Möguleiki að gos hefjist norðanmegin en ólíklegt þó Af neyðarstigi og á hættustig 48 þúsund króna sekt fyrir að beita hund harðýðgi „Þetta er bara brandarakvöld“ Hafa núna skrifborð þar sem áður var flugstýri Meðalævilengd eykst milli ára og ungbarnadauði minnkar Lést í umferðarslysi við Álfabakka „Auðvitað lét ég hann heyra það“ Samfylkingin mælist með 27 prósenta fylgi Réðust á og hótuðu starfsmönnum verslunar Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjá meira