Handbolti

Ligg bara í leti og horfi á HM

Davíð Georgsson, handboltamaðurinn efnilegi úr ÍR, hefur gengist undir aðgerð vegna meiðsla á hné. Davíð er aðeins nítján ára en hefur leikið lykilhlutverk með ÍR í DHL-deildinni og skorað mikið.

„Þessi meiðsli hafa verið að hrjá mig í allan vetur en hnéð gaf sig síðan bara á æfingu. Ég fór í segulómun og þar kom í ljós að liðþófinn var rifinn og ég þurfti í aðgerð,“ sagði Davíð eftir aðgerðina en hún heppnaðist vel.

Leikmenn ÍR fóru í vikunni til Kanaríeyja en Davíð komst ekki með vegna meiðslanna. „Það voru vonbrigði að komast ekki út með strákunum en þetta var það eina í stöðunni. Ég verð frá í tvær til þrjár vikur og býst við að verða klár þegar mótið byrjar. Maður verður bara rólegur heima í sófanum og fylgist með HM,“ sagði Davíð Georgsson.- egm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×