Menning

Ingibjörg Sólrún til sölu fyrir rétt verð

Málaði olímálverk af Ingibjörgu Sólrúnu og stillti upp í glugga ljósmyndastofu sinnar.
Málaði olímálverk af Ingibjörgu Sólrúnu og stillti upp í glugga ljósmyndastofu sinnar. MYND/Hrönn

„Ingibjörg er verðugt viðfangsefni fyrir málara,“ segir Björn T. Hauksson, ljósmyndari og málari, en hann hefur stillt olíumálverki sem hann málaði af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar, upp í glugga á ljósmyndastofu sinni á Óðinsgötu.

Bonni, eins Björn er kallaður, hefur oft tekið myndir af Ingibjörgu Sólrúnu og málaði málverkið eftir ljósmynd sem hann tók þegar Ingibjörg var borgarstjóri. „Það er svo sem engin meining á bakvið þetta, ég er enginn sérstakur fylgismaður Ingibjargar en hún hefur sterka andlitsdrætti og er umdeildur karakter, þannig mér fannst ekki úr vegi að mála af henni mynd. Fyrir jól var ég að spá hvað ég ætti að gera við myndina þegar konan mín stakk upp á því að ég hengdi hana upp í glugga á ljósmyndastofunni, það myndi ábyggilega vekja athygli.“

Bonni segir að Ingibjörg hafi séð málverkið og litist vel á en hann hefur líka fengið athugasemdir frá öðrum sem eru minna hrifnir. „Það er greinilega kominn kosningaskjálfti í menn,“ segir hann og hlær. „Ætli ég verði ekki að stilla upp myndum af mönnum úr öllum flokkum til að gæta jafnræðis.“ Spurður hvort verkið sé falt segir Bonni svo vera. „Það þyrfti að bjóða þokkalegan pening, en fyrir rétt verð er myndin til sölu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.