Menning

Í minningu Hallgríms

Einar Jónsson listamaður myndhöggvari myndlistarmaður safn bygging
Einar Jónsson listamaður myndhöggvari myndlistarmaður safn bygging

Sýning á verkum Einars Jónssonar myndhöggvara verður opnuð í forkirkju Hallgrímskirkju í dag. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, opnar sýninguna kl. 17 en hún er unnin í samvinnu Listvinafélags Hallgrímskirkju og Hallgrímssafnaðar við Listasafn Einars Jónssonar sem lánar verkin.

Á sýningunni eru þrjú gifsverk, Mold frá 1904-1908, Natura Mater frá 1906 og Minnismerki Hallgríms Péturssonar frá 1914-1922, sem öll eru hugsuð sem minnismerki látinna og viðfangsefni þeirra mót lífs og dauða, hringrás lífsins og sigur andans yfir efninu. Stærst verkanna er Minnismerki Hallgríms Péturssonar sem Einar hóf að gera þegar þrjú hundruð ár voru liðin frá fæðingu séra Hallgríms og er verkið hylling til sálmaskáldsins.

Er þar sérstaklega vísað til Passíusálmanna með myndum af hinum fjórtán stöðvum á píslargöngu Krists og eru ljósmyndir af þeirri myndröð á sýningunni. Minning séra Hallgríms mun hafa verið Einari sérlega hugleikin og í safni hans er líkan að Hallgrímskirkju sem myndir eru af á sýningunni. Sýningin stendur til loka maímánaðar og er opin á sama tíma og kirkjan.

Við opnun sýningarinnar syngur Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.