Innlent

Sagt ósatt um kauprétt æðstu stjórnenda

 Vitnaleiðslur halda áfram fyrir héraðsdómi og nýtur Sigurður Tómas Magnússon, saksóknari í Baugsmálinu, aðstoðar Hrafnhildar Gunnarsdóttur, auk annarra aðstoðarmanna, til að ná utan um gríðarlegan fjölda vitna sem kalla á fyrir.
Vitnaleiðslur halda áfram fyrir héraðsdómi og nýtur Sigurður Tómas Magnússon, saksóknari í Baugsmálinu, aðstoðar Hrafnhildar Gunnarsdóttur, auk annarra aðstoðarmanna, til að ná utan um gríðarlegan fjölda vitna sem kalla á fyrir. MYND/Vilhelm

Endurskoðandi KPMG sem unnið hefur að endurskoðun fyrir Baug frá árinu 1999 staðfesti í gær að fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs og einn ákærðu í Baugsmálinu hafi sagt sér ósatt þegar því var haldið fram við endurskoðandann að ekki hafi verið gerðir kaupréttarsamningar við stjórnendur.

Anna Þórðardóttir, sem starfar sem endurskoðandi hjá KPMG, bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í Baugsmálinu í gær. Hún var meðal annars spurð um kauprétt æðstu stjórnenda Baugs, stjórnarformanns, forstjóra og aðstoðarforstjóra, en fram hefur komið að kaupréttarákvæði voru í ráðningarsamningum þeirra og þau voru nýtt að hluta árið 1999.

Framburður Önnu var samhljóma framburði annars endurskoðanda sem bar vitni fyrir helgi en eins og hann sagðist Anna ekki hafa heyrt af kaupréttinum fyrr en síðla árs 2002, eða mögulega snemma árs 2003.

Borin var undir Önnu skýrsla sem hún gaf hjá lögreglu þar sem hún hélt því fram að Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, hafi sagt henni ósatt þegar hann hélt því fram að engin kaupréttarákvæði væru í samningum við stjórnendur Baugs, sem á þeim tíma var félag skráð á markað. Hún staðfesti að þetta hafi hún sagt hjá lögreglu og þar með að hún stæði við þessa fullyrðingu.

Í sömu lögregluskýrslu er það haft eftir Önnu að stjórnendur fyrirtækisins, þar á meðal Óskar Magnússon stjórnarformaður og Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri, hafi skrifað undir staðfestingu við gerð ársreikninga um að allt væri fram komið sem þyrfti að koma fram, án þess að minnast á að ekkert kæmi fram um að kaupréttarákvæði væru í gangi í ársreikningunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×