Tónlist

Bítlarnir á netinu

Bítlarnir njóta enn mikilla vinsælda og bíða margir eftir því að geta hlaðið niður lögum sveitarinnar.
Bítlarnir njóta enn mikilla vinsælda og bíða margir eftir því að geta hlaðið niður lögum sveitarinnar.

Netfyrirtækið Wippit býður nú dyggum aðdáendum Bítlanna að hlaða niður sjaldséðum myndum af hljómsveitinni og einstökum hljóðupptökum með viðtölum við hljómsveitarmeðlimina fjóra.

Þá verður einnig hægt að hlaða niður sjónvarpsfréttum af Bítlaæðinu sem greip heimsbyggðina í kringum 1964, brúðkaupi Pauls og Lindu McCartney og rúmlegu John Lennon og Yoko Ono. Jafnframt fá netverjar að sjá þegar fjórmenningarnir frá Liverpool mæta á hvers kyns verðlaunahátíðir, félagana á tökustað myndarinnar Help! og fundum sínum með hefðarfólki.

Enn sem komið er verður þó ekki hægt að hlaða niður lögum Bítlanna þar sem hljómsveitarmeðlimirnir og EMI Records þráast við að gefa leyfi. Wippit birti frétt þess efnis að hægt yrði að kaupa lög hljómsveitarinnar en fulltrúar útgáfufyrirtækisins heimtuðu að sú frétt yrði tekin út af síðu Wippit. Fastlega er þó gert ráð fyrir að það verði hægt á næstunni og má þá búast við því að annað og ögn tæknivæddara Bítlaæði gangi yfir hina netvæddu heimsbyggð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×