Tónlist

Músíktilraunir fara vel af stað

the portals Hljómsveitin The Portals úr Grafarvogi er komin áfram í Músíktilraunum. Dómnefnd valdi hana áfram.
Fréttablaðið/heiða
the portals Hljómsveitin The Portals úr Grafarvogi er komin áfram í Músíktilraunum. Dómnefnd valdi hana áfram. Fréttablaðið/heiða

Músíktilraunir hófust í 25. skiptið síðastliðið mánudagskvöld í Loftkastalanum. Alls taka 48 hljómsveitir þátt í keppninni í ár en í kvöld fer fram fjórða undanúrslitakvöldið og hið seinasta fer síðan fram annað kvöld.

Nú þegar eru komnar áfram hljómsveitirnar Magnyl, Loobyloo, Spooky Jetson og The Portals. Tvær bættust svo við hópinn í gær. Allar ágætlega frambærilegar sveitir en engin afgerandi þó.



primera Primera frá Vestmannaeyjum komst ekki áfram í úrslitin. Primera er eingöngu skipuð stelpum og vakti mikla lukku meðal áhorfenda.

Líkt og á Músíktilraunum síðasta árs verður sett upp ljósmyndasýning í anddyri Loftkastalans. Þar eru hengdar upp myndir af hljómsveitum sem taka þátt daginn eftir að þær koma fram og geta áhugasamir keypt myndirnar, sem teknar eru af Billa. Í anddyrinu fer einnig fram sýning á ljósmyndum Bjargar Sveinsdóttur sem hefur tekið myndir á keppninni í tuttugu ár.

 

universal politics Hljómsveitin Universal Politics tók þátt í Músíktilraunum en komst ekki áfram.

Sjálft úrslitakvöldið verður svo loks haldið í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, laugardaginn 31. mars, klukkan 17.00. Verðlaun verða veitt í ýmsum flokkum en sérstaka athygli vekja verðlaun fyrir bestu textagerðina á íslensku, sem er nýbreytni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×