Tónlist

Lagi Magna stolið frá Rás 2

Rokkarinn Magni er mjög sáttur við sína fyrstu sólóplötu.
Rokkarinn Magni er mjög sáttur við sína fyrstu sólóplötu.

„Fólk er orðið frekar tæknivætt þegar það er farið að gera svona hluti. Ég botna ekkert í þessu," segir Magni Ásgeirsson, en nýjasta lag hans, If I Promised You The World, er komið í dreifingu á netinu án hans samþykkis.



Erlendir aðdáendur Magna hafa beðið í ofvæni eftir fyrstu sólóplötu hans sem kemur út hérlendis og á iTunes í lok mánaðarins. Tókst einhverjum þeirra að stela nýja laginu af heimasíðu Rásar 2, þar sem það var frumflutt á dögunum. Einnig hafa hinir æstu aðdáendur tekið lög af MySpace-síðu Magna sem eiga að vera vernduð gegn þjófnaði.

Platan heitir einfaldlega Magni og segist rokkaranum ekki hafa dottið neitt skárra nafn í hug. „Af því að hún er á ensku en er gefin út á Íslandi og líka á iTunes þá er hún þannig séð gefin út alls staðar. Það var ekki hægt að láta hana heita íslensku nafni og ekki heldur ensku þannig að þetta er fín lausn."



Magni, sem var upptekinn við sveitastörf á traktori þegar Fréttablaðið ræddi við hann, segist vera mjög sáttur við plötuna. „Hún „sándar" alveg frábærlega og ég er mjög hreykinn af útkomunni. Það gekk allt upp einhvern veginn en ég á eftir að sjá hana fullbúna. Vonandi hefur ekkert klúðrast." Magni, sem tók plötuna upp í Danmörku, gefur hana út sjálfur og segir það skipta miklu máli. „Þetta gefur manni fullkomið frelsi og það er enginn sem getur sagt þér að gera neitt. Þarna á maður líka allt sjálfur og enginn getur tekið neitt af þér. Maður stendur bara og fellur með þessu sjálfur."



Útgáfutónleikar vegna nýju plötunnar verða haldnir á Borgarfirði eystri, heimaslóðum Magna, þann 27. júlí næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×