Tónlist

Ólöf og félagar leggja í hann

Lay Low þykir afar skemmtileg á tónleikum.
Lay Low þykir afar skemmtileg á tónleikum.

Tónleikaferð þeirra Ólafar Arnalds, Lay Low og Péturs Ben um landið hefst í kvöld. Fyrstu tónleikarnir eru á Egilsstöðum.

„Ég er mjög spennt yfir þessu öllu saman því það er lengi búið að vera draumur hjá mér að fara í svona tónleikaferð um landið. Ég hef spilað úti á landi aður en aldrei farið á svona túr,“ segir Ólöf Arnalds tónlistarkona sem ásamt þeim Pétri Ben og Lay Low mun gleðja eyru landsmanna á tónleikaferð hringinn í kringum landið. Þau munu spila á Egilsstöðum, Akureyri, Hrísey, Stokkseyri, Bolungarvík, Akranesi og enda svo á því að spila í Reykjavík.

„Ég hef komið á alla staðina nema Hrísey og hlakka mikið til að koma þangað. Staðurinn sem við spilum á þar er pínulítill og það verður ábyggilega bara fólkið sem býr þarna sem kemur og kannski nokkrir ferðamenn. Annars verður þetta örugglega allt mjög skemmtilegt.“

Það er Rás 2 sem er bakhjarl ferðarinnar og tilgangur hennar er að að gefa tónlistaráhugafólki á landsbyggðinni tækifæri til að sjá og heyra fremsta tónlistarfólk landsins af yngri kynslóðinni í heimabyggð.

Bæði Pétur Ben og Lay Low spila með hljómsveitum sínum en Ólöf verður ein með kassagítar.

Öll hafa þau vakið mikla athygli fyrir nýútkomnar plötur sínar og þykja afar skemmtileg á tónleikum. Því er það mikill happafengur fyrir landsbyggðarbúa að eiga þess kost að sjá þau spila á tónleikum.

Nánari upplýsingar um tímasetningar og tónleikastaði má finna á heimasíðu Rásar 2, www.ruv.is/poppland.

Þá er viðtal við Ólöfu Arnalds í tengslum við nýútkomna plötu hennar Við og við í Fréttablaðinu á laugardaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.