Menning

Tekur Partílandið fram yfir Harry Potter

Björn Thors, Jón Atli Jónasson, Erlingur Gíslason, Friðgeir Einarsson, Laufey Elíasdóttir og Jón Páll Eyjólfsson.
Björn Thors, Jón Atli Jónasson, Erlingur Gíslason, Friðgeir Einarsson, Laufey Elíasdóttir og Jón Páll Eyjólfsson. MYND/Vilhelm
„Ég er núna að fara að spila með landsliðinu en auðvitað vilja allir spila með Draumaliðinu,“ segir Jón Páll Eyjólfsson, leikari og leikstjóri, sem stóð frammi fyrir erfiðri ákvörðun í vikunni. Fréttablaðið greindi frá því að hann væri einn þeirra sem þyki koma til greina í hlutverk í sjöttu kvikmyndinni um Harry Potter. Þau áform rákust hins vegar á við leikstjórn Jóns Páls á Partílandinu, leikverki Jóns Atla Jónassonar sem sett verður upp í Þjóðleikhúsinu sem lokapunktur Listahátíðar.

„Þessar fréttir af Harry Potter-dæminu ýttu við mér og komu mér í svolítið uppnám. Ég kýs að ræða það ekkert frekar en eins og staðan er núna er ég að fara að leikstýra Partílandinu,“ segir Jón Páll. „Ég gat bara ekki haldið þessari sýningu í gíslingu og varð að taka ákvörðun. Hitt dæmið er eðli málsins samkvæmt mjög ótryggt.“

Fyrsti samlestur á Partílandinu fór fram í Þjóðleikhúsinu í gær. Í helstu hlutverkum eru Erlingur Gíslason, Kristbjörg Kjeld, Björn Thors og Laufey Elíasdóttir auk höfundarins Jóns Atla og leikstjórans Jóns Páls. „Já, ég er í veigamiklu hlutverki. Leikhópurinn og allir sem koma að þessu eru alveg frábærir – þetta er sannarlega landsliðið í íslensku leikhúsi,“ segir Jón Páll. Auk áðurnefndra leikara munu nokkrir þjóðþekktir einstaklingar koma fram í sýningunni sem þeir sjálfir. Jón Páll fæst ekki til að upplýsa hverjir það er, segir það ekki tímabært.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×