Tröllaslagurinn í Kvosinni 3. maí 2007 05:30 Tröllaskellan á ferð um erlenda stórborg
Skessur leggja undir sig Reykjavík sólarhringana fyrir kosningarnar. Tilefnið er ekki fardagar heldur Listahátíðin sem skellir sér ofan í síðustumetrana í kosningabáráttu og andlegan undirbúning þjóðarinnar fyrir Eurovision. Í gær voru kynnt áform Listahátíðar, Franska vorsins í Reykjavík og fjölda stuðningsaðila með lögreglu og slökkvilið, Glitni og Samskip, Gámafélagið og framkvæmdasvið Reykjavíkur að helypa á götur kvosrainnar tveimur tröllum sunnan úr álfu. Það er götuleikhópurinn Royal de Luxe sem hingað kemur og treður upp í miðborginni, börnum og fullorðnum til ánægju. Á blaðamannafundir í gær hgélt forkólfur og leikstórui hópsins hjartnæma tölu um kynni sín af Íslandi úr sögu Jules Verne, hin gað hafi hann alltaf langað að koma , á stað þar sem ævintýri og raunveran mættust, sagan og lífið. Hann smíðaði því ævintýri sem hentaði söguþjóðinni - hún ætti jú orðið saga. Jean Luc Courcoult hefur rekið risabrúðuleikhús sitt í nær tuttugu ár. Hann segir sig þjóna sömu hefð og hleypti helgileik kirkjunnar á götur borga Evrópu eftir að kirkjunni var ljóst að fornar hefðir skrílsláta og fagnaðar yrði kirkjan að taka yfir. Sagan sem hann smíðaði fyrir sýningar flokksins í Reykjavík tekur snið sitt af fornum tröllasögum: við miðpunkt borgarinnar - í Grófinni - hafa franskri fornleifafræðingar verið við rannsókn og vakið úr dái styggan tröllkarl sem við það fer á stjá og veldur skemmdum og öllu lauslegu sem á bvegi hans verður, einkum þó bílum. Til að koma bvöndum á tröllkarlinn er leitað hjálpar dóttur hans sem kemur og reynir að stilla föður sinn. Þessi feðgin verða á ferð um borgina, loka ökuleiðum, taka á móti þúsundum barna ogh berst leikur þeirra frá Hlemmi og niður á hafnarbakka suður í Hljómskála. Taka verður fram að þau eru engin smásmíði: stúlkan sem er minni en karlinn vegur ellefu tonn með fylgihlutum. Hun tekur börn í hendur sér og lætur blíðlegar en faðir hennar sem bæði hrækir á fólk og spyr eldi. Gott að hann sprænir ekki óhreinni vökvum að nærstadda. Þessi tröllaslagur mun ekki fara framhjá neinum sem í Kvosinni verður eða á leið um Sæbrautina. Í allt verða um tvöhundurð tæknimenn og bæjarstarfsmenn við leikinn og ættu allir sem vettlingi geta valdið að fylgjast með ferðum þeirra feðgina. Ólíkt öðrum borgum sem hafa fegnið þau í heimsókn verður uppljóstrað um ferðir þeirra og áfangastaði á vef listahátíðar, artfest.is, svo akandi menn geti gert ráðstafanir. Luðrablástur og mannfylgd mun annars tefja margra för. Það eru því dótadagar hjá starfsmönnum borgarinnar en þau tröllin eru þessi dægrin við æfingar ásamt öllu sínu hyski og hafa sér til fulltingis starfsmenn borgarinnar og Faxaflóahafna. Það stefnir í að það verði að það verði rosalegt fjör í bænum þann 11. og 12. mai. Bara tröllin dagi ekki uppi í borginni.
Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Lada Sport okkar tíma Lífið samstarf Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Vatnsdeigsbollur með Dúbaí-fyllingu: „Þið verðið að prófa“ Lífið Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira