Körfubolti

Verð áfram í Keflavík

Magnús Þór verður áfram í Keflavík.
Magnús Þór verður áfram í Keflavík. MYND/stefán

Magnús Þór Gunnarsson hefur samið við Keflavík til eins árs en hann skoðaði það einnig vandlega að ganga til liðs við Snæfell.

„Ætli Keflavíkurhjartað hafi ekki slegið hraðar en Snæfellshjartað að þessu sinni,“ sagði Magnús við Fréttablaðið. Hann ákvað sig um helgina eftir vandlega íhugun. „Það hefði ekki verið minni áskorun að fara í Snæfell. Þar eru góðir leikmenn og góður þjálfari.“

Magnús hefur allan sinn feril leikið með Keflavík og samdi nú til eins árs eins og áður segir. „Nú á að vinna allt sem er í boði. Við höfum verið það lélegir síðustu tvö árin að nú er komið að því að sýna okkar rétta andlit.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×