Menning

Nýtt myndlistarrit

Anna Júlía Friðbjörnsdóttir myndlistarmaður kemur að útgáfu Sjónauka.
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir myndlistarmaður kemur að útgáfu Sjónauka. MYND/gva

Nú er unnið að því að setja á stofn nýtt rit um íslenska myndlist. Myndlistarritið Sjónauki verður blanda af blaði og bók en viðfangsefnið er allt mögulegt sem tengist myndlist. Aðstandendur Sjónauka, myndlistarmennirnir Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Karlotta Blöndal, fengu á dögunum útgáfustyrk frá Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. „Það er mikil vöntun á sérhæfðu riti um myndlist á Íslandi. Svo hefur verið í nokkur ár en í gegnum tíðina hafa margir reynt að koma slíku riti á laggirnar,“ segir Anna Júlía og bætir við að hugmyndin hafi þegar fengið ágætan hljómgrunn enda séu þær stöllur síst þær einu sem séu á þeirri skoðun að meiri myndlistarumfjöllun vanti í íslenska fjölmiðla.

„Við stefnum að því að gefa ritið út tvisvar á ári, og að efnið verði bæði á íslensku og ensku,“ útskýrir Anna Júlía. „Markmið Sjónauka er meðal annars að vera vettvangur fyrir gagnrýna umræðu um myndlist því hún er afar lítil hér á landi – það eru greinar á stangli í íslenskum blöðum en margar þeirra eru meira í ætt við fréttatilkynningar.“ Hún tekur fram að einnig skorti talsvert upp á skrásetningu myndlistarinnar þar sem katalógar fylgi fæstum sýningum. „Þetta verður vandað og eigulegt heimildarit. Við stefnum að því að vera með listamann í hverju tölublaði sem vinnur verk sem fylgir ritinu. Viðkomandi hefur frjálsar hendur, verkið getur verið plakat, diskur eða jafnvel ljósmyndasería. Í blaðinu verður síðan að finna greinargóðan texta um listamanninn. Hvert tölublað mun einnig hafa ákveðna yfirskrift eða viðfangsefni.“

Stefnt er að því að fyrsta ritið komi út í september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×