Tónlist

Yoko Ono vill Amiinu

Yoko Ono er heilluð af tónlist Amiinu.
Yoko Ono er heilluð af tónlist Amiinu.

„Þetta kom okkur mikið á óvart og við erum búnar að hlæja mikið að þessu,“ segir María Huld Markan meðlimur hljómsveitarinnar Amiinu. Yoko Ono valdi um helgina lagið Seoul af nýrri plötu Amiinu, Kurr, sem eitt af átta lögum sem hún myndi hafa með sér á eyðieyju.

Þetta kom fram í útvarpsþættinum Desert Island Music á bresku útvarpsstöðinni BBC 4. Þátturinn fær vikulega til sín frægt fólk sem velur þá tónlist sem það vildi ekki vera án ef svo illa vildi til að það strandaði á eyðieyju. Þetta er rúmlega sextíu ára gamall þáttur sem hefur mjög mikla hlustun.

„ Þetta er örugglega góð auglýsing fyrir okkur bara af því hver hún er. Hún er auðvitað hálfgert listaídol.“ Maríu finnst þetta líka sérstaklega skemmtilegt í ljósi þess að lag Amiinu skar sig töluvert frá hinum lögunum sem hún valdi. Hin lögin voru gamlir standardar með Bob Marley, Edith Piaf og fleirum. María býst þó ekki við að þær stöllur í Amiinu myndu taka tónlist Yoko með sér á eyðieyju. „Hún er auðvitað frábær kona en það er kannski ekki beint tónlistin sem heillar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.