Menning

Álfar setjast að í Edens ranni

Hluti af verkinu „SJÖ SAMTÖL“ eftir Önnu Hallin.
Hluti af verkinu „SJÖ SAMTÖL“ eftir Önnu Hallin.

Þegar heldri konur vildu taka sér sunnudagstúr létu þær karlana keyra sig í Eden áður fyrr. Nú er ný kynslóð kvenna sæknari á önnur mið. Og þó. Á laugardag ætla fjórar vaskar myndlistarkonur að opna sýningu í Edens ranni. Þær eru Anna Hallin, Margrét Hlín Sveinsdóttir, Olga Bergmann og Steinunn Guðríður Helgadóttir en þær voru allar við myndlistarnám á sama tíma í Gautaborg.



Eden á sér djúpar rætur í þjóðarsálinni og tengist góðum minningum um framandi náttúru og ís með dýfu. Í mörg ár hafa líka erlendir ferðamenn uppgötvað ýmislegt sem staðurinn hefur upp á að bjóða á leið sinni um landið. Þar hafa löngum verið myndlistarsýningar, en listamenn verið af annarri kynslóð en þær stöllur.



Sýninguna kalla þær Álfavarp og segja hana tímabundna heimsókn ókunnra afla í þennan aldingarð þjóðarinnar: „Þessi öfl rannsaka og gera tilraunir með mannlíf og náttúru staðarins.“ Verkin eru af ýmsu tagi: hljóðverk, myndverk í þrívídd og myndbandsverk. Áætlað var að sýningin yrði í Eden næstu þrjár helgar en forvitni um þessa samsetningu hins forna staðar í sínum túristastíl og hinna ungu framsæknu myndlistarkvenna kann að leiða til lengra sýningar­halds.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.