Tónlist

Ólöf Arnalds með síðdegistónleika

Plata Ólafar kemur út í Evrópu í næsta mánuði
Plata Ólafar kemur út í Evrópu í næsta mánuði MYND/365
Ólöf Arnalds heldur síðdegistónleika í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg á morgun. Þar mun hún leika lög af plötunni Við og Við sem kom út hjá 12 Tónum í vor og kemur út í Evrópu í næsta mánuði.

Síðdegistónleikar 12 Tóna hafa verið haldnir í rúmlega níu ár og hafa þeir meðal annars notið mikilla vinsælda hjá erlendum ferðamönnum í sumar. Staðurinn er lítill og skapast oft sérstök stemmning vegna nálægðar áheyrenda við listamanninn.

Tónleikarnir hefjast klukkan 17:30 og er aðgangur Ókeypis.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.