Körfubolti

Samdi við þýskt úrvalsdeildarlið

Jeb Ivey
Jeb Ivey Mynd/Vilhelm

Körfuknattleiksmaðurinn Jeb Ivey hefur samið við þýska félagið Goettingen. Félagið er nýliði í úrvalsdeildinni þar í landi. Ivey hefur verið einn besti leikmaður landsins undanfarin ár en hann hafði þegar ákveðið að fara frá Njarðvík.



Ivey var stigahæsti leikmaður deildarmeistara Njarðvíkur á síðasta tímabili en hann skoraði 19,5 stig að meðaltali í leik. Hann var einnig stigahæsti leikmaður liðsins í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×