Körfubolti

Spilar með KR í vetur ef ekkert breytist

Helgi Már Magnússon
Helgi Már Magnússon

Helgi Már Magnússon, landsliðsmaður í körfubolta, gæti vel hugsað sér að spila með Íslandsmeisturum KR á næsta tímabili ef hann fær ekki freistandi tilboð erlendis frá. Helgi Már lék með svissneska liðinu Basket-Club Boncourt við góðan orðstír í vetur og er nú á fullu að undirbúa sig fyrir verkefni landsliðsins í haust. „Ég verð ekki áfram í Sviss, var að vonast eftir því að komast til Frakklands en eins og staðan er núna þá verð ég bara heima," segir Helgi Már.



Helgi Már Magnússon spilaði eitt fullt tímabil með KR áður en hann fór í háskólanám við Catawba-skólann. Það var veturinn 2001-02 og var Helgi Már með 12,4 stig og 7,9 fráköst að meðaltali í leik. Helgi Már var í stóru hlutverki á fjórum árum sínum í Catawba þar sem hann var með 13,8 stig og 5,9 fráköst að meðaltali í 119 leikjum sínum fyrir skólann. Helgi og félagar í Boncourt komu mörgum á óvart með frammistöðu sinni í úrslitakeppninni þar sem liðið veitti verðandi meisturum í Benetton harða keppni í undanúrslitunum. Helgi Már átti mjög góða leiki í úrslitakeppninni og í undanúrslitaeinvíginu gegn Benetton var hann með meðal annars með 14,3 stig að meðaltali og 47 prósent nýtingu úr 19 skotum fyrir utan þriggja stiga línuna.



„Það er enginn heimsendir að vera hérna heima enda eru mjög spennandi tímar hjá KR. Ég er að vonast eftir því að þetta skýrist á næstu dögum því ég nenni ekki að hafa þetta hangandi yfir mér eitthvað fram eftir hausti. Ég ætla að bíða næstu vikurnar og sjá hvað gerist. Ég ætla bara að einbeita mér að landsliðinu," segir Helgi Már sem myndi styrkja KR-liðið mikið ekki síst þar sem liðið er að taka þátt í Evrópukeppninni í fyrsta sinn í sextán ár. Helgi Már hefur leikið 46 landsleiki fyrir Ísland og skoraði í þeim 295 stig eða 6.4 að meðaltali í leik. Hann hefur leikið alla leiki liðsins undanfarin þrjú ár og var varafyrirliði liðsins þegar liðið vann gullið á Smáþjóðaleikunum í Mónakó fyrr í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×